Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Androsace lactea
Ættkvísl   Androsace
     
Nafn   lactea
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Silfurberglykill
     
Ætt   Primulaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   snjóhvítur
     
Blómgunartími   júlí
     
Hæð   0.1-0.15m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Silfurberglykill
Vaxtarlag   blaðhvirf. á stuttum skriðulum renglum, myndar lausar breiður
     
Lýsing   blómstönglar allt að fimm úr sömu blaðhvirfingu, blómin stór með sýld krónublöð, á löngum blómstilkum 4-6 saman í sveip. blöðin eru Þráðlaga, dökkgræn og lítið eitt sveigð
     
Heimkynni   Fjöll í Mið Evrópu og Júgóslavíu
     
Jarðvegur   léttur, framræstur, sendinn, meðalÞurr, magur
     
Sjúkdómar   engir
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   skipting að hausti eða vori sáning að hausti
     
Notkun/nytjar   breiður, steinhæðir, kanta, hleðslur
     
Reynsla   Mjög falleg og blómsæl tegund, a.m.k. norðanlands, hefur dafnað vel í Lystigarði Akueyrar (H. Sig.).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Silfurberglykill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is