Catabrosa aquatica

Ættkvísl
Catabrosa
Nafn
aquatica
Íslenskt nafn
Vatnsnarfagras
Ætt
Poaceae (Grasaætt)
Samheiti
Glyceria airoides (Koeler) Rchb.;Glyceria aquatica (L.) J. Presl & C. Presl;Glyceria catabrosa Klett & Richt.;Molinia aquatica (L.) Wibel;Poa airoides Koeler;Catabrosa aquatica subsp. minor (Bab.) F. H. Perring & P. D. Sell;Catabrosa aquatica subsp. monantha Haas
Lífsform
Fjölær grastegund
Kjörlendi
Vex í votlendi, í grunnum tjörnum, lænum, skurðum, flóum og mýrum.
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.10 - 0.30 m
Vaxtarlag
Stráin gisstæð, að mestu jarðlæg sveigjast upp af skriðulum jarðstöngli með greinóttum renglum, liðahnén oftast ósýnileg,10-30 sm á hæð en jarðlægar renglur oft lengri.
Lýsing
Blöðin lin, hárlaus með rauðfjólublárri slikju, fremur stutt, 2-4 mm á breidd. Slíðrin mjúk, oftast rauðblá, lokuð neðan til. Slíðurhimnur, odddregnar, 2-3,5 mm á lengd. Punturinn blámóleitur, uppréttur, keilulaga, 4-7 sm á lengd, með með útstæðum eða niðursveigðum greinum. Smáöxin oftast einblóma, mjó, um 3 mm á lengd. Axagnirnar frekar stuttar (1-1,5 mm), snubbóttar, grænar eða bláleitar, oft með óreglulega skertum jaðri. Neðri blómögn með þrem upphleyptum taugum um 2,5-3 mm á lengd. Blómgast í júní-júlí.LÍK/LÍKAR: Punturinn auðþekktur en renglurnar geta minnt á skriðlíngresi, en hafa mun styttri og breiðari blöð.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, Clayton, W.D., Harman, K.T. and Williamson, H. (2006 onwards). GrassBase - The Online World Grass Flora. http://www.kew.org/data/grasses-db.html. [accessed 2. feb. 2007]
Útbreiðsla
Allalgengt um land allt.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Afríka, Asía, N & S Ameríka.