Berberis johannis

Ættkvísl
Berberis
Nafn
johannis
Íslenskt nafn
Postulabroddur**
Ætt
Mítursætt (Berberidaceae)
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Vor
Hæð
- 1,5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, þyrnóttur, uppréttur runni, allt að 1,5 m á hæð, náskyldur B. tsarongensis og haustbroddi (B. yunnanensis), en greinarnar eru rauðleitar í fyrstu seinna gular, dálítið rákóttar.
Lýsing
Þyrnar allt að 1,5 sm langir. Lauf öfugegglaga, allt að 2 sm löng og 1 sm breið, heilrend, blágræn neðan. Blómin eru 4-10 saman í 2-3,5 sm löngum sveip eða klasa. Aldin mjó og löng oft í miðjunni dálítið samandregin, 1,2 sm löng, skarlatsrauð, ekki hrímug/döggvuð, ekki með stíl.
Uppruni
Kína (Zizang), SA Tíbet
Harka
z4
Heimildir
7,1
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stakstæðir, blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2000 og gróðursett í beð 2004.