Comarum palustris

Ættkvísl
Comarum
Nafn
palustris
Íslenskt nafn
Engjarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
Potentilla palustris (L.) Scop.
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Dumbrauður.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
15-25 sm
Vaxtarlag
Jarðstöngull langur og skriðull.
Lýsing
Lauf fjöðruð, smálauf 3, 5 eða 7 talsins, allt að 6 x 2 sm, aflöng, jaðrar grófsagtenntir, næstum hárlaus neðan. Blómin allt sað 3 sm í þvermál, á allt að 45 sm löngum stönglum, í strjálblóma, endastæðum kvíslskúf. Bikarblöð allt að 15 mm, egglaga, odddregin, með purpuraslikju. Utanbikarblöð bandlaga, miklu minni en bikarblöðin. Krónublöð dökkburpura, hálf lengd bikarblaðanna.
Uppruni
Ísland, Evrópa, N N Ameríka
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Við tjarnir og læki, mýrabeð.
Reynsla
Harðgerð, íslensk jurt sem oft flutt í garða. Þrífst vel í mýrabeði í Lystigarðinum.