Dodecatheon pulchellum

Ættkvísl
Dodecatheon
Nafn
pulchellum
Íslenskt nafn
Skriðugoðalykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi, skuggi.
Blómalitur
Rauðrófupurpura til hvítur.
Blómgunartími
Síðla vors til snemmsumars.
Hæð
15-30(-50) sm
Vaxtarhraði
Meðalvaxtarhraði.
Vaxtarlag
Plöntur hárlausar til kirtilhærðar.Mjög breytileg, lágvaxin fíngerð tegund, blöð öll í hvirfingu við jörð.
Lýsing
Laufin sporbaugótt til öfuglensulaga eða spaðalaga, mjókka smám saman að grunni, 1,5-20 sm x 5-25 mm, heilrend til ögn bylgjuð.Blómstönglar 4,5-50 sm, sveipir með 1-20 blóm. Blóm með 5 krónuflipa, rauðrófupurpura til hvít, 5-15 mm í þvermál. Frjóþræðir samvaxir í mjóa, gula pípu, 1-2,5 x 1-2 mm. Frjóhnappar 3-6 mm, gulir til brúnrauðir, tengsl slétt, brúnrauð til purpura. Fræni ekki stækkuð. Fræhýðistennur hvassyddar. Fræhýðisveggir brothættir eða þykkir.
Uppruni
N Ameríka frá Alaska til Mexikó.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning að hausti, fremur erfið í sáningu.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í steinhæðir, í skrautblómabeð.
Reynsla
Tegundin er breytileg og gjarnan skipt nokkuð niður í nokkrar deilitegundir, sem er erfitt að greina í sundur.
Yrki og undirteg.
# ssp. pulchellum - Lauf 5-20 sm, mjókka smám saman niður í legginn, blómsveipir með 4-20 blóm, frjóþræðir gulir.# ssp. cusickii (Green) Calder & Taylor. Fræðhýðisveggir þykkir og seigir. Heimk.: V Bandaríkin.# ssp. watsonii (Tideström) Thompson. Lauf 1,5-4,5 sm, sveipir með 1-4 blóm. Heimk.: V N-Ameríka. # ssp. macrocarpum (Gray) Taylor & MacBride. Lauf egglaga, mjókka mjög snögglega að leggnum. Heimk.: V Bandaríkin.# ssp. monanthum (Greene) Thompson. Frjóþráðapípa brúnrauð til purpura.D. pulchellum ssp. pulchellum er áhugaverðust til garðræktar og oft seld undir 'Red Wings' eða 'Victoria'. 'Red Wings' er aðeins um 20 sm að hæð með dökkrósrauð blóm, vinsæl og mikið ræktuð, sérlega góð í steinhæð.