Malus coronaria

Ættkvísl
Malus
Nafn
coronaria
Íslenskt nafn
Haustepli
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól (getur vaxið í dálitlum skugga.)
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Vor-snemmsumars.
Hæð
- 7 m erlendis.
Vaxtarlag
Lítið, útbreitt tré.
Lýsing
Lítið tré allt að 7 m hátt og útbreitt. Greinar stinnar með margar stuttþyrnóttar hliðargreinar, lóhærðar í fyrstu en verða hárlausar. Lauf 5-10 sm, egglaga-aflöng, ydd, grófsagtennt, ögn flipótt einkum á grófum greinum, lóhærð í fyrstu en verða hárlaus og skarlatsrauð-appelsínugul. Blóm 4-6 í klasa, 4 sm breið, bleik, krónublöð hálfkringlótt, Aldin 4 sm, íflöt-hnöttótt, græn, grunnur ögn gáróttur, ilmar.
Uppruni
NA Bandaríkin.
Sjúkdómar
Mikil mótstaða gegn sjúkdómum.
Harka
Z4
Heimildir
1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning. --- Fræi er best að sá að haustinu um leið og það er þroskað, geymið sáninguna í sólreit, það spírar oftast síðvetrar. Fræ sem hefur verið geymt þarf það að fá kuldameðferð í rökum mosa eða sandi í 3 mánuði við um 1°C og það ætti að sá því í sólreit strax við fáum fræðið í hendur. Það er óvíst að það spíri fyrr en eftir 12 mánuði eða meir. Dreifplantið hverri kímplöntu í sér pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla. Plönturnar eru hafðar í pottum í sólreit þangað til síðla vors næsta ár, gróðursettar í beð þegar þær eru orðnar nógu stórar, skýlt fyrstu árin.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, blandað limgerði.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 2001, í uppeldi 2011.