Pulsatilla halleri

Ættkvísl
Pulsatilla
Nafn
halleri
Ssp./var
ssp. halleri
Íslenskt nafn
Heiðabjalla
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Dökkfjólublár.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
15-20 sm
Vaxtarlag
Sjá lýsingu á aðaltegund nema hvað ssp. halleri er frábrugðin að þessu leyti: Blómstönglar venjulega lengri en 5 sm í blóma. Grunnlauf 3-7 sm, oftast fjaðurskipt í 5 hluta (fyrsta skipting), venjulega færri en 50 flipar alls, meira eða minna ullhærðir.
Lýsing
Sjá aðaltegund nema hvað blómin eru dökkfjólublá.
Uppruni
SV & M Alpafjöll.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skrautblómabeð.
Reynsla
Harðgerð jurt.
Yrki og undirteg.
Form með blúndujöðruð krónublöð eru ræktuð að minnsta kosti erlendis og líka með hálfofkrýnd blóm.