Thuja koraiensis

Ættkvísl
Thuja
Nafn
koraiensis
Íslenskt nafn
Kóreulífviður
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae)
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
1-2 m (9 m)
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Lágvaxinn útbreiddur runni, sjaldan allt að 9 m hátt tré í heimkynnum sínum. Greinar útréttar og vita upp á við til endanna, standa þétt saman, niðursveigðir greinaendar, börkur þunnur, rauðbrúnn, síðar dökkbrúnn og flagnar.
Lýsing
Nálar eru allt að 3 mm; á aðalsprotum þríhyrndar til egglaga og standa mjög þétt en á flötum hliðargreinum eru þær ávalari og tígullaga til þríhyrndar, skærgrænar á efra borði með greinilegum, kringlóttum kirtlum en neðra borð er bláhvítt. Við nudd gefa þær frá sér sterkan möndluilm. Fullþroska könglar allt að 1 sm, egglaga, ljósbrúnir til brúnir, úr u.þ.b. 8 hreistrum, þau miðstæðu frjó; hreistur verða trékennd með aldrinum með framjaðraða odda.
Uppruni
N & S Kórea.
Harka
5
Heimildir
1, 2
Fjölgun
Sáning, síðsumarsgræðlingar, vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Þyrpingar, steinhæð, jaðar trjábeða.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein planta sem keypt var 1996 og önnur sem keypt var 2000, báðar gróðursettar í beð 2001. Vetrarskýling 2001-2007. Báðar þrífast vel, kala næstum ekkert, eru mjög fallegar.Meðalharðgerð - harðgerð. Nokkrar plöntur hafa vaxið í Hallormsstaðaskógi síðan 1954, hafa vaxið hægt en kala lítið, eru nú góður meter á hæð (Á.Sv.)