Rosa

Nafn
Rosa
Yrki form
Dart`s Dash
Höf.
(Darthuis Nursery 1980) Holland
Lýsing
Þetta er ígulrósarblendingur (Rosa rugosa hybrid) og runnarós, þéttvaxin. Blómin eru 7,5-10 sm breið, hálffyllt, krónublöðin (9-)12-16, dökkrauð-blárauð með gulum fræflum, lotublómstrandi og með óvenju sterkan og þungan ilm. Lauf þétt og mjög hrukkótt, verða appelsínugul-gul að haustinu. Nýpur appelsínugul-rauðar stórar og hnöttóttar.
Uppruni
Yrki
Heimildir
Hjörtur Þorbjörnssonhttp://www.alliednursery.comhttp://www.illinois.eduhttp://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm
Notkun/nytjar
Góð í limgerði. Hraust og hefur mikið viðnám gegn sjúkdómum.Sólríkur vaxtarstaður. Vel framræstur jarðvegur.Klippið 1/3 af allra elstu greinunum til að endurnýja runnann að vorinu eftir því sem þarf til að halda runnanum opnum og að nýjar greinar vaxi. Klippið stofn að greinaviki eftir því sem þarf til að minnka breidd og hæð runnans.
Reynsla
Rosa Dart`s Dash var keypt í Lystigarðinn 1996 og gróðursett í beð það ár, flutt í annað beð 2003, kelur mikið. Önnur planta kom sem græðlingur í Lystigarðinn frá Grasagarði Reykjavíkur 2004, óvíst að hafi lifnað. Engar upplýsingar um hvernig hún þrífst í Reykjavík.