Rosa

Nafn
Rosa
Yrki form
'Empress Josephine'
Höf.
(fyrir 1815) Frakkland
Ætt
Rosaceae
Samheiti
Rosa x francofurtana Thory not Muenchhausen, The Frankfurt Rose, Imperatrice Josephine R. x francofurtana Empress Josephine
Lýsing
Kynbótamaður óþekktur.Þetta er Rosa gallica blendingur og gamaldags garðrós. Runninn um 1,5 m hár, 1,20 m breiður, útbreiddur, þéttvaxinn, næstum þyrnalaus, blómviljugur og blómstrar einu sinni á sumri í fáeinar vikur. Blómin eru djúp bleik með ljósari flikrum. Blómin lausfyllt, krónublöðin hálfgagnsæ, ögn bylgjuð. Ilmur daufur en sætur. Laufið grágrænt með djúpum æðum. Myndar mikið af nýpum.
Uppruni
Yrki
Heimildir
Hjörtur ÞorbjörnssonMoughan, P. et al. Ed. :The Encyclopedia of RosesPetersen, V 1981: Gamle roser I nye haver. Utgivet av de danske haveselskaber København 1981.http://www.apictureofroses.comhttp://www.marthastewart,comhttp://www.ncsu.eduhttp://www.rdrop.comhttp://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm
Notkun/nytjar
Talin þola fremur magran jarðveg og hálfskugga og sögð auðræktuð. Getur þurft stuðning.Nefnd til heiðurs konu Napóleons Frakklandskeisara, en hún dáði rósir.Talin af sumum vera blendingur Rosa gallica og R majalis og upprunnin í N Evrópu og ef til vill sú rós sem grasafræðingurinn Carolus Clusius nefndi 1538.
Reynsla
Kom sem græðlingur í Lystigarðinn frá Grasagarði Reykjavíkur 2004, óvíst að hafi lifnað. Falleg í Reykjavík en virðist ekki verða jafn kröftug og Frankfurt.