Acer divergens

Ættkvísl
Acer
Nafn
divergens
Ætt
Hlynsætt (Aceraceae).
Samheiti
Acer cappadocicum Gled. ssp. divergens (K. Koch ex Pax) A. E. Murray
Lífsform
Runni - lítið tré
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulgrænn.
Blómgunartími
Síðla vors.
Hæð
4-6 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni eða tré, 4,7-6 m hátt og 6-9 m breitt. Blómlitur gulgrænir, lítt áberandi.
Lýsing
Lauf oftast 5- eða 3-flipótt, 2-3 sm breið, djúpflipótt, flipar breið-egglaga, heilrendir, yddir eða snubbóttir, grunnur þverstýfður til næstum hjartalaga, netæðótt á neðraborði, hárlaus. Vængir láréttir, endar sveigjast upp á við, 2,5 sm langir og 1 sm breiðir.
Uppruni
Tyrkland (Transkákasus).
Harka
4
Heimildir
1,7, http://davesgarden.com
Fjölgun
Sumargræðlingar. Fræi sem er sáð að haustinu, strax og það er þroskaðeða eftir forkælingu. Blómskipanir með fræinu eiga að fá að þorna á plöntunni og svo er fræinu safnað.
Notkun/nytjar
Í þyrpinga, í beð. Meðalvökvun, vökvið reglulega, ekki offvökva. Fallegir haustlitir.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1996 og lofar góðu.