Aconitum paniculigerum

Ættkvísl
Aconitum
Nafn
paniculigerum
Ssp./var
v. wulingense
Höfundur undirteg.
(Nakai) U.V.Wang.
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Purpurablár.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
70-100 sm
Vaxtarlag
Stöngulstofn öfugkeilulaga, 2-3 sm. Stönglar 70-100 sm, greinóttur efst, hárlaus. Grunnlauf hafa visnað þegar að blómgun kemur, miðlaufin eru með langan lauflegg, laufleggurinn um 6 sm, hárlaus. Laufblaðkan hjartalaga-fimmhyrnd, 10-15 x 13-16 sm, hárlaus á neðra borði, með ögn af aðlægum dúnhárum á því efra, 3-skipt, miðflipinn tígullaga, langydd, næstum fjaðraður, hliðarflipar skakk-blævængslaga, 2-skipt, hlutarnir misstórir.
Lýsing
Blómskipunin keilulaga, með mörg blóm, aðalleggur í laufum og blómleggirnir með útstæða dúnhæringu, neðstu stoðblöðin 3-skipt, önnur eru bandlaga. Blómleggir 3-5,5 sm, með 2 smástoðblöð um miðju, þessi stoðblöð eru mjó-bandlaga, um 5 mm. Bikarblöð purpurablá, ögn dúnhæður neðan, neðri bikarblöð aflöng, hliða-bikarblöð breið öfugegglaga, efsta bikarblaðið há-hjálmlaga, 1,6-1,8 sm há, neðri jaðarinn uppréttur eða íhvolfur. Krónublöð hárlaus, vör um 4 mm, 2-flipa í toppinn. Sporinn boginn, ögn hringvafinn efst, um 2,5 mm. Fræflar hárlausir, frjóþræðir heilrendir. Frævur (3-)5, hárlausa. Fræhýði um 1,1 sm. Fræin um 2 mm.
Uppruni
Kína (NA Hebei, A Jilin, SA Liaoning), Kórea.
Heimildir
= www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=2&taxon-id=200007287, Flora of China.
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2010 og gróðursett er í sólreit 2015.
Yrki og undirteg.
v. paniculigerum - Aðalleggur í laufum og laufleggir með útstæð dúnhár.v. wulingense - Aðalleggur í laufum hárlaus, laufleggir með ögn af útstæðum dúnhárum efst.