Hypericum attenuatum

Ættkvísl
Hypericum
Nafn
attenuatum
Ætt
Gullrunnaætt (Hypericaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gullgulur.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
10-45(-70) sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 10-45(-70) sm há, uppréttir stönglar vaxa upp frá jarðstönglum eða skriðulum jarðstönglum. Stönglar margir til fáir, í þúfum, mjög greinótt. Stönglar eru með 2 rákir, með svartar kirtildoppur og rákir og oft lítið af (rauðleitum eða svörtum) kirtildoppum annarsstaðar.
Lýsing
Laufin legglaus, blaðkan oddbaugótt til aflöng eða öfuglensulaga eða (sjaldan) egglaga, (0,8-)1,5-3,1(-3,8)sm × (3-)5-12(-15)mm, þykk-pappírskennd, ljósari á neðra borði, kirtildoppur á blöðkunni fölar og svartar, fáar og á víð og dreif, margar efst. Doppur innan við jaðarinn eru svartar, strjálar. Aðal hliðar-æðarnar 2 í pari, hliðaræða-net þétt en oft fremur ógreinilegt og greinilega strjált, grunnur er hálfhjartalaga til fleyglaga, jaðar heilrendur og sléttur, oddur snubbóttur til bogadreginn. Blómskipunin (1 eða) fá til margblóma úr 1-4 liðum, stundum með blómstrandi greinar upp að 4 lið neðan frá, öll er hún sívöl til pýramídalaga, stoðblöð og smástoðblöð aflöng-oddbaugótt, jaðrar heilrendir. Blóm 1,3-2(-2,5) sm í þvermál, stjörnulaga. Blómknappar egglaga, oddur næstum hvassyddur til hvassyddur. Bikarblöð ósamvaxin, upprétt, þríhyrnd-egglaga til lensulaga, breytileg til misstór, (3,5)5-10 × 1-4 mm. Kirtlar á blöðkunni eru ljósir, rákir eða doppur og svartar doppur á víð og dreif, oddur hvassydd til langyddur, æðar 5-7. Krónublöð ?gullgul með rauða slikju í knúppinn, aflöng-öfugegglaga, 0,8-1,2 sm × 4-7 mm, 2,4-3 × lengri en bikarblöðin, ósammiðja, blöðkukirtlar svartir, doppur og rákir, á víð og dreif, jaðarkirtlar svartir, þéttir efst, jaðar heilrendur. Fræflar um 90, greinilega í knippum, þeir lengstu 8-10 mm, 0,7-0,8 × lengri en krónublöðin. Eggleg mjó-egglaga, stílar 3, ósamvaxnir, 4-4,5 mm, 1,2-1,6 × lengri en egglegið, mjög útstæðir. Fræhýði breið-egglaga eða aflöng-egglaga til mjó-keilulaga, (4-)6-10 × 2-6 mm, 2-3 × lengri en bikarblöðin, lokar stöku sinnum með fáar, svartar, aflangar kirtilrákir. Fræin millibrún, 0,7-1,1 mm, fræhýði fín band-götótt.
Uppruni
Kína.
Heimildir
www.eFloras.org, Flora of China
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í kanta, meðfram runnaþykknum.