Malus yunnanensis

Ættkvísl
Malus
Nafn
yunnanensis
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 10 m í heimkynnum sínum.
Vaxtarlag
Lauffellandi, þétt, upprétt tré.
Lýsing
Lauffellandi, þétt, upprétt tré allt að 10 m hátt, og 6 m breitt í heimkynnum sínum, ársprotar flókahærðir en aðeins í fyrstu. Lauf 6-12 sm, breiðegglaga, grunnur bogadreginn eða hjartalaga, jaðrar grófsagtenntir, stöku sinnum með 3-5 pör af grunnum, breiðum sepum, flókahærð neðan. Verða rauð-appelsínugul með aldrinum. Blóm 1,5 sm breið, oftast í þéttum hálfsveipum allt að 5 sm breiðum, blómin hvít, Bikar og blómleggur þétt dúnhærður, brúskhærður, stílar 5. Aldin 1-1,5 sm, rauð, með grópum, bikar flatur. Blómin tvíkynja, skordýrafrævun.
Uppruni
V Kína.
Harka
Z6
Heimildir
1, http://www.pfpf.org
Fjölgun
Sáning, græðlingar --- Fræi er best að sá að haustinu um leið og það er þroskað, geymið sáninguna í sólreit, það spírar oftast síðvetrar. Fræ sem hefur verið geymt þarf það að fá kuldameðferð í rökum mosa eða sandi í 3 mánuði við um 1°C og það ætti að sá því í sólreit strax við fáum fræðið í hendur. Það er óvíst að það spíri fyrr en eftir 12 mánuði eða meir. Dreifplantið hverri kímplöntu í sér pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla. Plönturnar eru hafðar í pottum í sólreit þangað til síðla vors næsta ár, gróðursettar í beð þegar þær eru orðnar nógu stórar, skýlt fyrstu árin.
Notkun/nytjar
Stök, í raðir.
Reynsla
Engin, er ekki í Lystigarðinum.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR. Vex í blandskógum í brekkum eða meðfram lækjum í 1600-3800 m hæð yfir sjó í Kína (Guizhou, Hubei, Sichuan og Yunnan).A Asía- Kína.