Malus yunnanensis

Ættkvísl
Malus
Nafn
yunnanensis
Ssp./var
v. veitchii
Höfundur undirteg.
Rehd.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 10 m erlendis.
Vaxtarlag
Upprétt tré.
Lýsing
Lauf egglaga, grunnur greinilega hjartalaga, jaðrar lítillega sepóttir, blaðkan stuttydd, verður alveg hárlaus, Blóm allt að 1,2 sm í þvermál. Aldin 1,3 sm breið, rauð með hvítum grópum.
Uppruni
M Kína.
Harka
Z 6
Heimildir
1, http://www.pfpf.org
Fjölgun
Græðlingar, sáning. ---Fræi er best að sá að haustinu um leið og það er þroskað, geymið sáninguna í sólreit, það spírar oftast síðvetrar. Fræ sem hefur verið geymt þarf það að fá kuldameðferð í rökum mosa eða sandi í 3 mánuði við um 1°C og það ætti að sá því í sólreit strax við fáum fræðið í hendur. Það er óvíst að það spíri fyrr en eftir 12 mánuði eða meir. Dreifplantið hverri kímplöntu í sér pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla. Plönturnar eru hafðar í pottum í sólreit þangað til síðla vors næsta ár, gróðursettar í beð þegar þær eru orðnar nógu stórar, skýlt fyrstu árin.
Notkun/nytjar
Stakt, í raðir.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum, en var sáð 2010.