Rhododendron

Ættkvísl
Rhododendron
Yrki form
'Elviira'
Höf.
(Marjatta Uosukainen 1986) Finnland.
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Skærrauður.
Blómgunartími
Vorblómsrandi.
Hæð
60-90(-100) sm
Vaxtarhraði
Meðalvaxtarhraði.
Vaxtarlag
Runninn greinist nógu mikið til að mynda þéttvaxinn runna, 60-90(-100) sm hár og 90-100 sm breiður.
Lýsing
'Elviira' er þéttvaxinn, sígrænn runni, mikils metinn skrautrunni í manngerðu landslagi. Blómskipanir eru stórar og með áberandi skærrauðum blómum sem koma að vorinu, jafnvel meðan plantan er ung.
Uppruni
Yrki.
Harka
Z4-8
Heimildir
http://www.monrovia.com, http://www.mm.helsinki.fi
Fjölgun
Síðsumargræðlingar, sveiggræðsla, ágræðsla.
Notkun/nytjar
'Elviira' er mjög góð með öðrum runnum eða sem lávaxið limgerði.Þrífst betur í svölu loftslagi en heitu. Vökvið reglulega þegar efstu 5-7 sm moldarinnar eru orðnir þurrir og vökvið reglulega fyrsta sumarið á meðan ræturnar eru að koma sér fyrir í jarðveginum. Jarðvegurinn þarf að vel framræstur blandaður miklu af lífrænum efnum. Berið súran áburð á að blómgun lokinni. Haldið rótunum köldum með þykku lagi af laufmold. Það ætti að skýla runnunum fyrir sólinni síðari hluta vetrar.
Reynsla
Plantan var keypt 2000 og gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Yfirleitt ekkert eða lítið kal, blómstrar flest ár.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Fyrsti finnska lyngrósaryrkið var nefnt Elviira 1986. Það blómstrar oftast í lok maí og er fyrsta lyngrósin sem blómstrar í Finnlandi.Elviira var nefnd eftir ömmu kynbótakonunnar M. Uosukainen..