Rhododendron

Ættkvísl
Rhododendron
Yrki form
Curlew
Höf.
(Cox 1970) Skotland.
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga.
Blómalitur
Ljósgulur.
Blómgunartími
Að vorinu.
Hæð
60 sm
Vaxtarlag
'Curlew er dvergvaxinn, sígrænn runni með dökkgrænt lauf.
Lýsing
Foreldrar (♀ × ♂): (R. ludlowii × R. fletcherianum).'Curlew' er eitt af yrkjunum úr svonefndri fugla seríu. Blómin eru opin, bjöllulaga, ljósgul með dekkri skugga og grænbrúnar doppur að innan, eitt til þrjú saman. Blómin eru tiltölulega stór miðað við djúpgræn laufin. Runninn er kröftugur og kringlulaga í vextinum, með hreistur. Hann verður allt að 60 sm hár á 10 árum og 90 sm breiður. Laufin eru öfugegglaga, sígræn, slétt, leðurkennd.
Uppruni
Yrki.
Harka
H4
Heimildir
http://www.shootgardening.co.uk, http://www.hirsutum.info, http://www.davesgarden.com, Cox, Peter & Kenneth 1990: Guide to Choosing Rhododendrons London.
Fjölgun
Síðsumargræðlingar, auðvelt að láta rætast.
Notkun/nytjar
Getur verið fremur rytjuleg ef aðstæðurnar eru ekki sem bestar, en best þrífast plönturnar nokkrar saman. Knúbbarnir geta verið viðkvæmir en venjulega koma blómin fram milli laufanna.
Reynsla
Plantan var keypt í Lystigarðinn 2000 og gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Mikið kalin 2002, léleg 2007 og dauð 2010.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Hlutar af plöntunni eru eitraðir og ætti ekki að leggja þá sér til munns.Hefur hlotið viðurkenningar: RHS AGM (Award of Garden MeritÞarf meðal vökvun, vökvið reglulega, en ekki of mikið.