Rhododendron

Ættkvísl
Rhododendron
Yrki form
Kalinka
Höf.
(Hachmann 1983) Þýskaland.
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Samheiti
Rhododendron yakushimanum hybrid 'Kalinka' .
Lífsform
Runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Skærbleikur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
Allt að 200 sm
Vaxtarlag
Bogaformaður, stór og mikill runni.
Lýsing
Foreldrar (♀ × ♂): ('Morgenrot' × 'Mars × yakushimanum Koichiro Wada') = ('Koichiro Wada' × 'Spitfire') x ('Mars' x 'Koichiro Wada') = [(? x ?) × (R. griffithianum x ?)] × [(R. griffithianum × ?) × (? × ?) ]. Runninn nær um 200 sm hæð á 10 árum, er ekki með hreistur, fallegur runni með sígrænt og dökkgrænt, glansandi, dálítið hært lauf. Þetta er þéttvaxinn runni sem ekki þarf að snyrta. Blómin eru í klösum, skærbleik en lýsast og verða ljósbleik en halda blómlitnum betur en R. yakushimanum blendingar.;
Uppruni
Yrki.
Heimildir
http://www.hirsutum.info, http://www.rarefindnursery.com, http://www.shootgardening.co.uk
Fjölgun
Síðsumargræðlingar, sveiggræðsla, ágræðsla.
Notkun/nytjar
Í runnabeð með síaða birtu.
Reynsla
Plantan var keypt í Lystigarðinn 2000 og var gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Ekkert kal 2007 og engin blóm. Dauð 2010.