Rhododendron

Ættkvísl
Rhododendron
Yrki form
Rosa Mundi
Höf.
(Standish & Noble 1860) England.
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Samheiti
Rhododendron Rosamundii.
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Skærbleikur-ljósbleikur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
150 sm
Vaxtarlag
Ávalur-kúlulaga runni. Runninn nær um 150 sm hæð á 10 árum.
Lýsing
Foreldrar (♀ × ♂): (R. caucasicum × ?).Hann er meira eða minna kúlulaga í vextinum og með hreistur. Blómin eru skærbleik-ljósbleik í litlum klösum. Laufin eru ögn lengri en á R. Christmas Cheer og er sögð blómstra nokkru seinna en Christmas Cheer.Þarf frjóan, vel framræstan jarðveg. Gott er að bæta moldina með safnhaugamold eða öðru lífrænu efni áður en plantað er. Þar sem Rhododendron plöntur hafa grunnt rótakerfi þurfa þær reglulega vökvun yfir sumarið, ekki síst á þeim tíma sem knúbbar fyrir næsta árs blóm eru að myndast.;
Uppruni
Yrki.
Harka
Z6
Heimildir
http://www.hirsutum.info, http://www.greatplantpicks.org
Fjölgun
Síðsumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í runnabeð þar sem birtan er síuð.
Reynsla
Plantan var keypt í Lystigarðinn 2000 og gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. 2010: ekkert kal, með blóm. Í hvamminum, stórt og flott eintak.