Rhododendron

Ættkvísl
Rhododendron
Yrki form
'Scarlet Wonder'
Höf.
(Hobbie/Le Feber (1960) Þýskaland.
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Sterkrauður.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
60-90 (90-120) sm
Vaxtarlag
Sígrænn runni sem verður 60-90 sm hár og 90-120 sm breiður. Runninn er þéttvaxinn með hreistur.
Lýsing
Foreldrar (♀ × ♂): 'Essex Scarlet' × R. forrestii Repens Group) =( ? × ?) × R. forrestii Repens GroupBlómskipunin er klasi af sterkrauðum blómum fyrri hluta sumars. Blómin er bylgjuð og breiðtrektlaga, ilmlaus og ekki með neina bletti eða doppur. Runninn er oft um hnéhár, með lítil, oddbaugótt milligræn lauf. Laufin mjög snúin og með áberandi æðar.;
Uppruni
Yrki.
Harka
H5
Heimildir
7, http://www.hirsutum.info, http://www.learn2grow.com, http://www.davesgarden.com
Fjölgun
Síðsumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Jarðvegur þarf að vera mjög lífefnaríkur, vel framræstur og súr. Hentar vel í blandaða beðkanta og steinhæðir. Plantan þarf meðalvökvun, vökvið reglulega en ofvökvið ekki. Plönturnar eru gróðursettar grunnt og molta eða trjákurl sett kring um hana til að halda rakanum betur í möldinni og að halda illgresi niðri. Ef nauðsynlegt er plantan snyrt strax að blómgun lokinni og áður en knúbbar næsta árs myndast. Gætið þess að gróðursetja plöntuna þar sem hún hefur nóg pláss til að ná fullri stærð. Yrkinu Scarlet Wonder líkar svalir vetur, meðalhlý sumur og að vera í hálfskuggi.
Reynsla
Plantan var keypt í Lystigarðinn 2006 og gróðursett í beð það sama ár. Ekkert kal t.d. 2007 og 2010 og með blóm bæði árin. Neðst í hvamminum og blómgast vel.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Hefur hlotið viðurkenningu t.d. RHS AGM (Award of Garden Merit, hjá Royal Horticultural Society). Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi. Hlutar plöntunnar eru eitraðir og ætti ekki að leggja sér til munns.