Rhododendron

Ættkvísl
Rhododendron
Yrki form
'Maharani'
Höf.
(Hachmann 1964) Þýskaland.
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Sólríkur eða meðalskuggi.
Blómalitur
Laxbleikur, ljósbleikur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
Allt að 180 sm
Vaxtarlag
Harðgerður, kröftugur, breiður uppréttur runni sem verður allt að 180 sm á 10 árum en getur orðið allt að 350 sm hár.
Lýsing
Foreldrar (♀ × ♂): ('Harvest Moon' × 'Letty Edwards Group') = ( 'Mrs Lindsay Smith' × R. campylocarpum ssp campylocarpum) × (R. campylocarpum Elatum Group × R. fortunei ssp fortunei) = [('George Hardy' × 'Duchess of Edinburgh') × R. campylocarpum ssp campylocarpum ] × [ R. campylocarpum Elatum Group × × R. fortunei ssp fortunei ].Laufin oddbaugótt til egglaga. Runninn er ekki með hreistur. Blóm eru laxbleik eða mjög ljósbleik, næstum hvít með gula miðju og með rauðbrúnar flykrur innan á efsta flipanum.;
Uppruni
Yrki.
Harka
Z7 ?
Heimildir
http://www.hirsutum.info, http://www.esvelt.nl, http://www.dungevalle.co.uk
Fjölgun
Síðsumargræðlingar, sveiggræðsla, ágræðsla.
Notkun/nytjar
Í runnabeð í síaðri birtu.
Reynsla
Plantan var keypt í Lystigarðinn 2000 og gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Yfirleitt ekkert eða lítið kal, blóm stöku ár. 2010 var ekkert kal.