Rhododendron watsonii

Ættkvísl
Rhododendron
Nafn
watsonii
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 6 m
Vaxtarlag
Sígrænn runni eða lítið tré, allt að 6 m hátt.
Lýsing
Lauf 10-20 sm, 2-2,3 sinnum lengri en þau eru breið, hárlaus á efra borði, á neðraborði með hvíta, þunna, þétta hæringu. Bikar allt að 2 mm með breið-þríhyrnda, kjötkennda flipa. Króna 3,5-4 sm, bjöllulaga, 7-flipótt, hvít með fagurrauða flekki við grunninn. Fræflar 14 talsins. Eggleg hárlaust. Fræhýði 3-3,5 sm.&
Uppruni
V Kína.
Harka
Z9
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í runnabeð þar sem birtan er síuð.
Reynsla
Ein planta var keypt i Lystigarðinn 2000, gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Kelur yfirleitt lítið eða ekkert, engin blóm t.d. 2010.