Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Compte du Chambord'
Höf.
(Robert et Moreau 1860) Frakkland.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Dökkbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
Allt að 120 sm
Vaxtarhraði
Meðalhraður vöxtur.
Vaxtarlag
Þetta er svonefnd Portland rós og gömul garðrós (antik rós) sem vex hóflegar en aðrir gamlir garðrósarunnar, er lotublómstrandi. Blómin eru að sönnu minni en á búrbónarósum, en þau eru með sætari ilm, mikill ilmur. Runninn verður 90-120(-175) sm hár og 90-150 sm breiður, er kröftugur í vextinum.
Lýsing
Foreldrar: Ef til vill 'Baronne Prévost' x 'Duchess of Portland'. 'Compte du Chambord' var kynbætt af Moreau-Robert í Frakklandi og komið á framfæri 1860, samkvæmt sumum heimildum 1863. Knúbbarnir eru fagurformaðir, blómin dökkbleik með mismiklum blápurpura blæ, þéttfyllt stór blóm 7,5 sm breið, með sterkan ilm. Lotublómstrandi og blómstrar lengi. Blómin eru stök eða í litlum klösum. Lauf milligræn.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
Hjörtur Þorbjörnsson, Grasagarði Reykjavíkur, Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, http://www.e-monsite.com, http://www.marthastewart.com, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/64572/#b
Fjölgun
Sumar-, haust-, vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Harðgerð, gömul garðarós, góð í þyrpingar, líka hægt að nota í ker.Sólríkur vaxtarstaður.
Reynsla
Rosa 'Compte du Chambord' kom sem græðlingur í Lystigarðinn frá Grasagarði Reykjavíkur, óvíst að hafi lifnað. Í Reykjavík er henni alltaf skýlt og kelur alltaf.