Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Ena Harkness
Höf.
(Norman 1946) Bretland.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fagurrauður-skarlatsrauður.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
70-80 sm
Vaxtarlag
Rósarunni, terósarblendingur. Stilkar 70-80 sm háir. Vöxturinn er miðlungi kröftugur og laufið er leðurkennt og grænt.
Lýsing
Foreldrar: Crimson Glory' x SouthportTerósarblendingur, lotublómstrandi. Þetta er ein af gömlu uppáhaldsrósunum. Blómin fagurrauð-skarlatsrauð, ilma mjög mikið. Rauðar rósir og ilmandi rósir eru alltaf vinsælar. Ena Harkness hefur báða þessa góðu eiginleika og er þess vegna plantað mikið (erlendis). Stilkarnir eru fremur veikbyggðir og eiga erfitt með að halda stórum, þungum blómunum uppi, einkum þegar heitt er í veðri (erlendis). Blómin eru stór, fyllt og falleg í laginu. Ilmurinn er óvenju sterkur og góður. Vel þess virða að rækta vegna ilmsins. Er blómviljug og blómstrar lengi.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Á til að sýkjast af mjölsvepp ef það loftar ekki nógu vel um hana.
Heimildir
Hanson, Ó. V. ritstj. 1976: Skrúðgarðabókin 2. útg. - Reykjavík, Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, Roy, Hay & Patrick Synge 1969: The Dictionary of Garden Plants in Colour with House and Greenhouse Plants. - George Rainbird LTD 1969, (Svensk översättninga och bearbetning Sven Nilson 1974. Örebro 1974), http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/70407/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
REYNSLA:Rosa Ena Harkness er ekki í Lystigarðinum, en hefur verið ræktuð í görðum á Akureyri, lifað og blómstrað fáein ár.
Reynsla
Góð í rósaþyrpingar og til afskurðar.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Verðlaun: RNS Gold 1945, Clay Challenger 1946