Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Henry Kelsey'
Höf.
(Dr. Felecitas Svejda 1976) Kanada.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi klifurrósarunni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúprauður.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
180-200 sm
Vaxtarlag
(R. kordesii blendingur). Þetta er kanadísk rós og ein af svonefndu explorer rósunum, var kynbætt í Ottawa. Mjög kröftug og harðgerð klifurrós, 180-200 m há og allt að 180 m breið, lotublómstrandi.
Lýsing
Blómin bollalaga, hálffyllt, djúprauð með áberandi gula miðju. Blómin mjög falleg, í klösum, ilma dálítið, ávaxtailmur. Glansandi, milligræn-dökkgræn lauf.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Með viðnámsþrótt gegn mjölsvepp, ryðsvepp og í meðallagi gegn svartroti.
Harka
Z4
Heimildir
http://www.backyardgardener.com/plantname/pd_3577.htlmhttp://www.marthastewart.comhttp://www3.sympaico.ca/galetta/tales/explorerroses.htmlwww.cornhillnursery.com/retail/roses/rosea.htlm#RP, www.canadianrosesociety.org(CRSMembers/Resources/RosePhotos/ExplorerRoses/tabid/70/Default.aspx, davesgarden.com/guides/pf/go/64683/#b
Fjölgun
Sumargræðlingar (rætast auðveldlega), síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi. Jarðvegur í meðal lagi næringarefnaríkur, miðlungi rakur til rakur.Auðræktuð. Mjög harðgerð og ónæm fyrir sjúkdómum, blómstrar jafnvel í hálfskugga.Rósin Henry Kelsey er ræktuð sem skriðull, útafliggjandi runni, sprotarnir geta náð yfir svæði sem er um 3 m², eða er ræktuð sem klifurrós ef sprotarnir eru bundnir upp.
Reynsla
Rosa Henry Kelsey' var keypt í Lystigarðinn 2006 og gróðursett í beð sama ár, vex vel en blómstrar ekki 2008 og 2009. Önnur planta var keypt 2008 og plantað sama ár í beð, vex vel og blómstraði 2008 og 2009.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Henry Kelsey er nafn á kanadískum landkönnuði.Explorer-rósir voru kynbættar til að þola meiri kulda og næðinga.