Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Europeana'
Höf.
(De Ruiter 1964) Holland.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Dökkrauður.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
60-80 sm
Vaxtarlag
Klasarós (floribunda). Hún er lágvaxin, útbreidd í vextinum, verður um 60 sm breið. Plantan myndar kröftuga runna með þéttar greinar, sem verða 60-80 sm háar.
Lýsing
Foreldrar : Rosa Ruth Leuwerik x Rosemary RoseRosa 'Europeana' er floribunda rós. Laufið er fallegt, glansandi og djúp grænt. Rósin er auðþekkt úr fjarlægð á glansandi bronsgrænu laufinu, sem er næstum koparlitt þegar plantan laufgast. Blómin ilma og eru með sterkum, dökkrauðum næstum svartrauðum lit með flauelsáferð. Þau eru mjög glæsileg og erfitt að hafa með öðrum rósum með öðruvísi rauð litbrigði. Blómin eru fremur smá, allt að 7,5 sm í þvermál, fyllt og mynda reglulega krónublaðahvirfinu. Þau eru mörg saman í stórum þungum klösum sem geta þurft stuðning þegar rignir, ef þeim hefur ekki verið plantað svo þétt að þau styðja hvert annað. Blómstrar allt sumarið.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Mjölsveppur.
Heimildir
Edinger, Philip & al. ed. 1981: How to grow roses A Sunset Book Lane Publishing Co. Menlo Park, California, Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/63187/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Ræktuð á móti sól. Í skjóli og sól getur hún sýkst af mjölsvepp. Hún er góð til afskurðar og er ein besta rauða floribunda rósin. Þessi sort kom fram 1963 hjá G. de Ruiter i Hollandi og er blanda af Ruth Leuwerik og Rosemary Rose.
Reynsla
Í Lystigarðinum var til planta, sem var keypt 1990 og plantað í beð. Hún reyndist dauð 1994. Önnur planta var keypt 2003 og plantað í beð, þreifst vel og blómstraði 2006. Misfórst í vetrargeymslu veturinn 2006-2007.