Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Marguerite Hilling'
Höf.
(Hilling 1959) Bretland.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa Pink Nevada, Rosa moyesii 'Marguerite Hilling' .
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Skær bleikrauður.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
- 200 sm
Vaxtarlag
Marguerite Hilling er meyjarósarblendingur (R. moyesii) Runninn er stór, verður allt að 200 sm hár. einblómstrandi. Greinar eru rauðar og með fáa þyrna.
Lýsing
Blómin eru um 8 sm í þvermál, hálffyllt, skær bleikrauð, ljósari bleik eða hvít í miðju, með ljúfan, léttan ilm. Hún blómstrar mest fyrst, er með fjölda blóma eftir bogsveigðum stilkunum. en svo koma blóm af og til allt sumarið. Nýpurnar eru stórar.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - KøbenhavnRoy, Hay & Patrick Synge 1969: The Dictionary of Garden Plants in Colour with House and Greenhouse Plants. - George Rainbird LTD 1969 (Svensk översättninga och bearbetning Sven Nilson 1974. Örebro 1974), http://www.elkorose.com/ehwrmn.html, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/52455/#b,https://www.rhs.org.uk/Plants/99104/Rosa-Marguerite-Hilling-%285%29/details
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Marguerite Hilling er stökkbreytt fræplanta af Rosa Nevada, kom raunar fram á fleiri en einum stað samtímis, bæði í Bretlandi og Nýja Sjálandi.Sníðið allar dauðar og lélegar greinar af runnanum svo nýjar greinar myndist frekar.
Reynsla
Rosa 'Marguerite Hilling' var keypt í Lystigarðinn 2006 og plantað í beð sama ár, vex vel og blómstrar árlega.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Rosa Marguerite Hilling hefur fengið viðurkenningu svo sem Royal Horticultural Society Award of Garden Merit 1993.