Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Sun Sprite'
Höf.
(Kordes 1973) Þýskaland
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
R. Friesia, R. Freezia, R. Korresia´.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Skærgulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
40-60 sm
Vaxtarhraði
Meðalhraðvaxta.
Vaxtarlag
Foreldrar: R. Friedrich Wörlein x Spanish Sun.Þetta er 20 aldar rós og klasarós (floribunda), lágvaxin, ein besta gula rósin. Runninn er uppréttur, 40-60(-90) sm á hæð, getur orðið 125 sm hár og 60(-60)sm breiður, er ávalur í vextinum og blómríkur.
Lýsing
Blómin eru í litlum klösum, bollalaga, skærgul, stór, fyllt, 28 krónublöð, mjög ilmsæt. Skær liturinn er sláandi.Laufið er fallegt sem er fallegur bakgrunnur fyrir fullkomið formið og gul blóm sem ekki lýsast með aldrinum. Lotublómstrandi. Laufið er glansandi, dökkgrænt með mikinn viðnámsþrótt gegn sjúkdómum.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Ónæm fyrir svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
Heimildir
Edinger, Philip & al. ed. 1981: How to grow roses A Sunset Book Lane Publishing Co. Menlo Park, California, Moughan, P. et al. ed. :The Encyclopedia of Roses, http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/471/#b, www.learn2grow.com/plants/rosa-korresia-sunsprite/
Fjölgun
Sumar-, síðsumar eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxarstaður.Þykir góð í beðjaðra erlendis. Nokkrar saman notaðar í beð eða sem limgerði (erlendis), í ker. Mjög kröftug og mjög frostþolin/veðurþolin rós. Þolir líka magran jarðveg og hita.
Reynsla
REYNSLA.Í Lystigarðinum voru til plöntur frá 1992, 2001 og 2006 sem lifðu aðeins eitt til fáein ár hver, ættu að geta lifað lengur.
Yrki og undirteg.
Viðurkenning: T. d. Gold Baden-Baden 1972 o. fl.