Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Sutters Gold'
Höf.
(H. C. Swim 1950) Bandaríkin.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
R. 'Sutters Gold'.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Ljós appelsínugulur m. daufbleika slikju.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
20-55 sm
Vaxtarlag
Foreldrar: Rosa Charlotte Armstrong x Signore. Sutters Gold er 20. aldar rós og terósarblendingur, kröftugur, uppréttur runni með margar hliðargreinar, 20-55(-80-100) sm hár, og allt að 60 sm breiður. Er til sem klifurrós (Climing Sutters Gold), þá er runninn sterkbyggður og grannvaxinn og myndar langar greinar.
Lýsing
Knúbbarnir eru appelsínurauðir, langir og glæsilegir. Blómin ljósappelsínugul með daufbleika slikju og skarlatsrauðar æðar, léttfyllt, 25-30 krónublöð. Blómin ilma mikið. Þau eru meira aðlaðandi í svölu loftslagi þar sem blómin opnast hægar og halda litunum betur. Blómstrar fram í frost. Laufið er mjög dökkgrænt og leðurkennt.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
Edinger, Philip & al. ed. 1981: How to grow roses A Sunset Book Lane Publishing Co. Menlo Park, California, Moughan, P. et al. Ed. :The Encyclopedia of Roses, Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.helpmefind.com/rose/l.php?l=2.6139
Fjölgun
Sumar-, síðsumargræðlingar, ágræðsla.
Notkun/nytjar
Sólrík, hlý beð í skjóli. Ekki skuggþolin.
Reynsla
Rosa 'Sutters Gold' reyndist skammlíf í Lystigarðinum.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Viðurkenningar t. d.:Portland Gold 1946, Bagatelle Gold 1948, All America Rose 1950, RNS Preis 1951.Rosa 'Sutters Gold' er tileinkuð John August Sutter (1803-1880), kaupmanni frá Kandern (Baden). Hann kom af stað gullæðinu í Kaliforniu.