Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Maigold'
Höf.
(Reimer Kordes 1953) Þýskaland
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa Maygold.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur / bronsgulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
200 (300-400) sm
Vaxtarlag
Foreldrar: Poulsen`s Pink x Frühlingstag (eða 'McGredy's Wonder' x 'Fruhlingsgold').Rosa Maigold er oft kennd við R. pimpinellifolia og hún er mjög kröftug klifurrós. Runninn verður allt að 300-400 m hár og 250 m breiður með bogsveigðar, mjög þyrnóttar greinar.
Lýsing
Knúbbarnir eru rauðleitir á meðan þeir eru óútsprungnir. Blómin bollalaga, gul/bronsgul, hálffyllt með 20-40 krónublöð og dökkgula fræfla, ilmandi, ilma mikið og vel, lotublómstrandi. Blómstrar snemma eins og nafnið bendir til. Blómstra í rauninni mest fyrst og svo kemur blóm og blóm. Blóm í klösum.Laufin glansandi, geta verið viðkvæm fyrir svartroti. Ef dauðu blómin eru sniðin af getur runninn aftur myndað blóm sem springa út í september.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Ónæmur fyrir sjúkdómum.
Heimildir
Bjarnason, Á.H. ritstj. 1996: Stóra garðblómabókin Alfræði garðeigandans - ReykjavíkNicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - Københavnhttp://www.elkorose.com/ehwrmn.htmlhttp://www.hesleberg.nohttp://www.plantpress.com/plant-encyclopedia/plantdb.php?plant=2492 http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,www.helpmefind.com/rose/pl.php?n=4075davesgarden.com/guides/pf/go/67301/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlinar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Þarf góðan jarðveg, en getur líka þrifist í mögrum jarðvegi. er talin skuggaþolin erlendis. Ein planta á m², þarf mikið rými.Notuð stök, nokkrar plöntur saman í beði, sem klifurrós á tígulgrind í stóra garða.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til planta af Rosa Maigold frá 1997 og hefur verið í beði frá því ári, flutt í annað beð 2003, kelur mismikið, rétt lifði 2008, óx mikið 2009, engin blóm. Áður hafa verið til tvær plöntur frá 1991 og 1996 sem lifðu í um fjögur ár hvor.