Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Iceberg'
Höf.
(Lambert 1901) Þýskaland.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Schneewittchen (Kordes 1958).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hreinhvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
Allt að 130 sm
Vaxtarlag
Klifurrós og klasarós (floribunda), hæð allt að 130 sm og breidd allt að 110 sm. Þetta er líklega ein fínasta klasarósin sem komð hefur fram, hefur mikinn viðnámsþrótt gegn sjúkdómum. Mjög kröftug, upprétt í vextinum og með fínt, ljósgrænt lauf.
Lýsing
Blómknúbbar langyddir. Útsprungið blóm er á stærð við blóm terósa. Blómin eru í klösum, hreinhvít, vellyktandi, ilma lítið. Runninn er næstum þyrnalaus, nýpur smáar, hnöttóttar, appelsínugular, nokkrar saman í klasa. Þróttmikil planta, ;
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Hraust planta með mikinn viðnámsþrótt gegn sjúkdómum.
Harka
h7
Heimildir
Edinger, Philip & al. ed. 1981: How to grow roses A Sunset Book Lane Publishing Co. Menlo Park, CaliforniaNicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, Roy, Hay & Patrick Synge 1969: The Dictionary of Garden Plants in Colour with House and Greenhouse Plants. - George Rainbird LTD 1969 (Svensk översättninga och bearbetning Sven Nilson 1974. Örebro 1974), http://www.hesleberg.no, http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, myfolia.com/plants/157-rose-rosa/varieties/7910-iceberg
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eog vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður en talin skuggþolin, en hún blómstrar minna í skugga en þar sem sólin skín. Jarðvegur miðlungi næringarefnaríkur. Þrjár plöntur á m². Hún er notuð í beð, nokkrar saman í þyrpingar, í limgerði og til afskurðar.
Reynsla
Rosa Iceberg hefur verið í Lystigarðinum, lifað nokkur ár. Ný planta var keypt 2007 og plantað í beð sunnan undir gróðurhúsið, blómstrar árlega.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Ruglið henni ekki saman við Kordes-rós með saman nafni, þ.e. Climbing Iceberg (Cant 1968) England.