Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'William Baffin'
Höf.
(Dr. Felecitas Svejda 1983), Kanada.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Djúpbleikur-dökkbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
180-240 sm
Vaxtarlag
Foreldrar: Rosa kordesii x ('Red Dawn' x Suzanne'). (R. cordes-blendingur).Rosa 'William Baffin' er 20. aldar rós, kanadísk klifurrós og ein af svo nefnum explorer rósum. Runninn er kröftugur, verður 180-240 sm hár og álíka breiður, hægt að hafa á tígulgrind, blómviljugur og lotublómstrandi, blómstrar allt sumarið.
Lýsing
Blómin eru í klösum, allt að 30 blóm í hverjum. Blómin falleg, en ilma lítið. Þessi léttfylltu, djúpbleiku-dökkbleik blóm með gullgulu fræflana eru í stórum klösum á stinnum stönglum. Krónublöðin 10-20 talsins. Sérstakur litur sem vekur nokkra athygli.Laufið stór, glansandi græn.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Viðkvæm fyrir svartroti, ónæm fyrir mjölsvepp og ryðsvepp.
Harka
Z2
Heimildir
Hjörtur Þorbjörnsson, Grasagarði Reykjavíkur, http://www.aurora.pp.fi/annesgarden/rosa, http://www.backyardgardener, http://www.hesleberg.no, http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml, http://www3.sympaico.ca/galetta/tales/explorerroses.html,www.floweringshrubfarm.com/rugosa.htm, www.cornhillnursery.com/retail/roses/rosea.htlm#RP, davesgarden.com/guides/pf/go/65069/#b, www.helpmefind.com/rose/pl.php?n=2560
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Frostþolin/vetrarþolin, er einn harðgerðasti klifurrunninn og hægt að skilja eftir án skýlingar á tígulgrindinni allan veturinn. Sólríkur vaxtarstaður, þolir ekki skugga. Ein planta á m². Notuð stök, í beð eða nokkrar plöntur saman.
Reynsla
Rosa William Baffin var keypt í Lystigarðinn 1996 og plantað í beð sama ár, flutt í annað beð 2003, kelur mismikið, en þrífst vel. Kom líka sem græðlingur í Lystigarðinn frá Grasagarði Reykjavíkur 2004, óvíst að hafi lifnað. Kelur alltaf en virðist þrauka í Reykjavík.Myndir eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.