Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Louise Odier'
Höf.
(Margottin 1851) Frakkland
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
R. "Mme de Stella".
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
- 180 (-200) sm
Vaxtarlag
Yrkið kom fram hjá Margottin í Frakklandi 1851, fræplanta frá Émile Courtier). Stór rósarunni, 180 sm hár, blómin bleik, blómstrar lengi. Kröftug búrbonrós (100-300 x 120 sm), sem getur orðið allt að 200 sm há ef hann vex upp við vegg.
Lýsing
Laufin eru hraust og ljósgræn. Blómviljig. Blómin eru í meðallagi stór, mjög falleg í laginu, skálarlaga, þéttfyllt með 28 krónublöð og ljósrósbleik, ilma nokkuð. Form blómsins minnir á blóm kamelíu. Ilmurinn er góður og blómgunartíminn nær yfir allt sumarið og fram á haustin. Greinar mynda boga. Lauf matt, skærgrænt. Fallegar nýpur. Gömul, harðgerð planta.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Viðkvæm fyrir svartroti og mjölsvepp.
Heimildir
Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, http://www.hesleberg.no, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/51652/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Ætti að klippa niður í 150 sm hæð. Hægt að fjölga með stiklingum.Sólríkur vaxtarstaður, þarf næringarríkan jarðveg Þolir ekki skugga. Ein planta á m². Notuð í beð, stök eða nokkrar saman eða sem klifurrós.
Reynsla
Rosa Louise Odier' hefur verið reynd í tvígang í Lystigarðinum og drepist eftir 1-2 ár. Ný planta var keypt 2007 og hún lifir 2009.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Nefnd eftir ballettmær í París á 19. öld.