Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Super Star'
Höf.
(Tantau 1960) Þýskaland.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa Tropicana, Rosa Superstar.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skær kóralbleik- og appelsínuguflikrótt.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
Allt að 100 sm
Vaxtarlag
'Super Star' er um 1 m hár runni, lotublómstrandi, um 60 sm breiður, 20. aldar klasarós, blómviljug, knúbbar yddir myndar ofkrýnd, nokkurn veginn bollalaga, opin blóm, stök eða nokkur saman. Kröftugur, stilklangur terósarblendingur.
Lýsing
Blómin eru mjög stór, formfögur, fyllt, skær kóralbleik- og appelsínuguflikrótt með sterka ávaxtailm, eftirsóknarverður litur sem fer vel með plöntum með silfurgrá lauf, hentar best sem stök rós eða með hvítum rósum.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Viðkvæm fyrir mjölsvepp.
Heimildir
Bjarnason, Á.H. ritstj. 1996: Stóra garðblómabókin Alfræði garðeigandans Reykjavík.Edinger, Philip & al. ed. 1981: How to grow roses A Sunset Book Lane Publishing Co. Menlo Park, California.Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog København.Roy, Hay & Patrick Synge 1969: The Dictionary of Garden Plants in Colour with House and Greenhouse Plants. - George Rainbird LTD 1969 (Svensk översättninga och bearbetning Sven Nilson 1974. Örebro 1974).http://www.horticlickhttp://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm
Fjölgun
Græðlingar.
Notkun/nytjar
Harðgerður og duglegur, hálfútbreiddur runni.Sólríkur vaxtarstaður.
Reynsla
Lítil reynsla er af Rosa Super Star. Í Lystigarðinum er til planta sem var keypt og plantað í beð sunnan undir gróðurhúsinu 2008, lifir og blómstrar 2009.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Ein af aðal rósunum á nýliðinni öld. Hefur fengið margar viðurkenningar.