Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'The Fairy'
Höf.
(Bentall 1932) England.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Fairy, Fairy Rose, Fairy Cluster.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Fölbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
50-100 sm
Vaxtarlag
('Paul Crampel' x 'Lady Gay'. Þekju- og dvergrós, 20, aldar Polyantha rós, blómin fölbleik. Blómin smá þéttfyllt og með léttan ilm. Runninn er lávaxinn, um 50 sm hár, útbreiddur, mjög duglegur með fíngerð lauf sem eru ónæm fyrir sjúkdómum. Getur sýkst af mjölsvepp og geislablettasýki ef veðráttan erfið.
Lýsing
Einstök blóm eru kanski ekki stórkostleg að sjá en þegar þau koma mörg saman eru þau áhrifamikil. Fínleg blóm bleik í klösum á þéttum sterklegum plöntum.Gróskumikill runni, sem blómstrar allt sumarið, talinn mjög góður í fjöldaútplantanir erlendis, blómstrar mikið alveg fram í frost.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Með mikinn viðnámsþrótt gegn svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
Harka
Z4
Heimildir
Bjarnason, Á.H. ritstj. 1996: Stóra garðblómabókin Alfræði garðeigandans - ReykjavíkEdinger, Philip & al. ed. 1981: How to grow roses A Sunset Book Lane Publishing Co. Menlo Park, CaliforniaNicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - Københavnhttp://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbmlhttp://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, http://www.cornhillnursery.com/retail/roses/roses.html#RP, davesgarden.com/guides/pf/go/2863/#b,www.finegardening.com/polyantha-rose-rosa-fairy
Fjölgun
Sumargræðlingar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður, talin þola hálfskugga erlendis, er salt og hitaþolin. Hægt að hafa í keri. Þarf góða loftræstingu og fjarlægið dauð lauf jafnharðan. Snyrtið eftir þörfum að vorinu.
Reynsla
Rosa The Fairy var keypt í Lystigarðinn 1996 og plantað í beð sama ár, og önnur planta var keypt 2004, sem misfórst í vetrargeymslu veturinn 2006-2007.