Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Pascali'
Höf.
(Lens 1963) Belgia
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Blanche Pascal, R. 'Lenip'
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur-rjómahvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
90-120 sm
Vaxtarlag
Foreldrar: Queen Elizabeth x White ButterflyKynbætt af Lens 1963 í Belgíu.Pascali er stórblóma terósarblendingur og 20. aldar rós. Einn besti hvíti terósarblendingurinn. Runninn verður um 100 sm hár og 60 sm breiður, lotublómstrandi. Í hlýju loftslagi verður runninn 75-200 sm hár og 50-120 sm breiður.
Lýsing
Blómin fjölmörg, mynduð á uppréttum stilkum. Blómin stór með háa miðju, hvít-rjómahvít, ofkrýnd, falleg í laginu og standa lengi eru ilmlaus eða með lítinn te-ilm. Laufið er leðurkennt, dökkgrænt, fer vel með fjölmörgu blómunum.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Með mótstöðu gegn svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
Heimildir
Edinger, Philip & al. ed. 1981: How to grow roses A Sunset Book Lane Publishing Co. Menlo Park, California, Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, http://www.helpmefind.com, http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml, http://www.rose-roses.com/rosepages, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,davesgarden.com/guides/pf/go/62957/#b,www.learn2grow.com/plants/rosa-lenip-pascali/
Fjölgun
Sumar-, síðsumaargræðlingar eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Í blandað runnabeð, upp við suðurvegg eða á girðingu, í þyrpingar, til afskurðar. Plantan hefur mjög mikla mótstöðu gegn sjúkdómum. Þarf sólríkan vaxtarstað. Það þarf að skýla rósinni gegn vorfrostum. Hægt er að rækta hana í kerjum en þá verður að verja kerin fyrir vetrarfrostum.Að vorinu eru gamlir, dauðir eða skemmdir stilkar klipptir niður sem og krosslægjur.
Reynsla
Í Lystigarðinum var til planta af Rosa Pascali frá 2001, sem misfórst í vetrargeymslu veturinn 2006-2007. Önnur planta keypt 2008, plantað sunnan undir gróðurhúsinu, blómstraði það 2008 og 2009.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Rósin hefur fengið margar viðurkenningar og verðlaun svo sem RNRS Certificate of Merit 1963, The Hague Gold Medal 1963, Portland Gold Medal 1967, WFRS Rose Hall of Fame and World's Favorite Rose 1991.Nafnið Pascali er líklega nafn ítalska listamannsinsem Pino Pascali (1935-1968).