Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Karen Blixen'
Höf.
(Pernille Olesen before 1990, Danmörk, Mogens Nyegaard Olesen,before 1990) Danmörk .
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól (-hálfskuggi).
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
90-120 sm
Vaxtarhraði
Meðalvaxtarhraði.
Vaxtarlag
Terósarblendingur. Runninn er hraustur og kröftugur, 90 to 150 sm hár og um 60 to 120 sm breiður.
Lýsing
Rosa 'Karen Blixen' er terósarblendingur með hvít eða næstum hvít blóm. Ilmur sterkur og mildur. Blómin eru stór, mjög þéttfyllt, að meðaltali 12 sm í þvermál, krónublöðin 41-70 talsins. Blómin koma í lotum yfir hásumarið og stöku sinnum seinna að sumrinu. Laufið er dökkgrænt, leðurkennt og glansandi.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Plantan er ónæm fyrir sjúkdómum.
Heimildir
http://www.helpmefind.com, http://www.planteshop.dk, www.learn2grow.com/plants/rosa-poulari-karen-blixen-pp9274-care-and-maintenance
Fjölgun
Síðsumar- eða vetrargræðlingar, haldið rökum í 4-6 vikur þar til þeir hafa rætst vel. Rótarhormónar.
Notkun/nytjar
Klippið burt dauðar og sjúkar greinar að vorinu sem og krosslægjur. Þar sem loftslag er hlýtt eru lifandi sprotarnir klipptir niður um 1/3. Á kaldari svæðum þarf líklega að klippa dálítið meira niður. Skýlið fyrir vorfrostum. Hægt að rækta í kerjum a.m.k. erlendis, en kerin þurfa vetrarskýli þar.
Reynsla
Í Lystigarðinum var til planta frá 1997 sem lifði til 2000.