Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Frühlingsgold'
Höf.
(Kordes 1937) Þýskaland.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa pimpinellifolia L. Frühlingsgold, Spring Gold.
Lífsform
Sumargræn runnarós.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Gullgulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
100-150(-250) sm
Vaxtarlag
Þetta er mjög kröftugur og harðgerður blendingur af þyrnirós (Rosa spinosissima), lotublómstrandi, með sterkar, bogamyndaðar, þyrnóttar greinar. Runninn er með tennt, ljósgræn lauf sem ekki glansa, hann er stór, getur orðið allt að 250 sm hár og 200 sm breiður, vex með löngum, greinum sem þarf að klippa með því að sníða burt það gamla eftir blómgun.
Lýsing
Foreldrar:'Joanna Hill' × Rosa pimpinellifolia L. 'Hispida'. Blendingurinn var kynbættur og ræktaður upp af Kordes, komið á framfæri og í sölu 1937. Knúbburinn er rauður, en blómið verður gullgult þegar það springur út, en upplitast auðveldlega í sterkri sól. Þau eru bollalaga, hálfyllt-einföld, ilmandi, gullgul blóm sem eru fölgul í miðju, gullgulir fræflar í miðju. Mjög blómviljugur og blómin standa lengi. Ilmurinn minnir á vanillu. Blómin sitja þétt á greinunum og eru mikil prýði fyrir hvern garð. Einn besti þyrnirósar-blendingurinn. ;
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Hefur mikinn viðnámsþrótt gegn mjölsvepp.
Heimildir
Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København,Roy, Hay & Patrick Synge 1969: The Dictionary of Garden Plants in Colour with House and Greenhouse Plants. - George Rainbird LTD 1969 (Svensk översättninga och bearbetning Sven Nilson 1974. Örebro 1974),http://www.backyardgardener.com,http://www.cfgphoto.com,http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,http://www3.sympaico.ca/galetta/tales/scotsroses.html,www.cornhillnursery.com/retail/roses/rosea.htlm#RP,https//www.rhs.org.uk/Plants/96545/Risa-Fe-252;hlingsgold-%285pH%29/Details
Fjölgun
Haust- eða vetrargræðlingar, brumágræðsla að sumrinu.
Notkun/nytjar
Sólríkur eða mjög sólríkur vaxtarstaður. Hraust planta.Jarðvegur sendinn-leirborinn, meðalrakur til rakur. Það er hægt að nota rósina sem klifurrós, annars er hún notuð í óklippt limgerði eða sem stakur runni.
Reynsla
Rosa Frühlingsgold' var keypt í Lystigarðinn 1996 og gróðursett í beð sama ár, flutt í annað beð 2003, kelur mismikið, hefur vaxið vel 2008 og 2009 a.m.k. en engin blóm.