Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Aloha'
Höf.
(Boerner 1949) USA
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Rósbleikur.
Blómgunartími
Ágúst september.
Hæð
1-2 m
Vaxtarlag
Þetta er klifurrós og grúppurós, tehybrid, sem er með eldri klifurrósunum, tilkomumikil, allt að 1 m há, síblómstrandi með sterkan terósailm, - sumir segja ilm af grænum eplum.
Lýsing
Foreldrar: 'Mercedes Gallart' x 'New Dawn'. 'Aloha' er með stærri blóm og dýpri lit en önnur formóðir hennar þ.e. 'New Dawn'. 'Aloha' er hægt að nota hvort heldur sem er á grindur eða sem runnarós með viðeigandi klippingu. Greinarnar eru miðlungi kröftugar, blómgunin mikil, blómin stór, stök eins og á terós. Blómin eru þéttfyllt, í tveim bleikum tónum, rósbleik með dekkri bakhlið krónublaða. Knúbbarnir eru egglaga, fremur smáir, blómin eru stór, þéttfyllt. Glansandi lauf og hóflegur vöxtur gerir hana góða súlurós eða jafnvel stóran runna.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
Edinger, Philip & al. ed. 1981: How to grow roses A Sunset Book Lane Publishing Co. Menlo Park, California, Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, http://www.rose-roses.com/rosepages, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.rhs.org.uk/Plants/91887/Rosa-Aloha-%28CIHT%29/Details
Fjölgun
Vetrargræðlingar, brumágræðsla að sumri.
Notkun/nytjar
Rosa 'Aloha' er formóðir eða meðal formæðra margra góðra rós. Sögð þola fremur magra jörð erlendis og þrífast þokkalega þó hún sé ekki í fullri sól.Þarf stuðning vegna þess hve blómin eru þung.
Reynsla
Rosa 'Aloha' er ekki til í Lystigarðinum 2010, en var reynd einu sinni, lifði ekki fyrsta veturinn af 1992-1993.