Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Brother Cadfael'
Höf.
(Austin 1990) England.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Skærbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
50-80 sm
Vaxtarlag
Þetta er ensk 20. aldar rós, miðlungsstór kröftug runnarós, 50-80 sm há en getur orðið 150 sm há og 120 sm breið, þyrnalaus (eða því sem næst), síblómstrandi, laufin dökkgræn.
Lýsing
Blómin mjög stór, skærbleik, fyllt, ilma mikið og vel. Blómin þéttfyllt, krónublöðin 40 talsins.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Hefur viðnámsþrótt gegn svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
Heimildir
http://www.hesleberg.no, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.helpmefind.com/rose/l.php?l=2.860,davesgarden.com/guides/pf/go/52124/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar-, vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður. Þolir ekki skugga. Þarf næringarríkan jarðveg. Hæfilegt að hafa 1 plöntu á m². Notuð stök, í beð eða 3-5 plöntur í þyrpingu. Notið þá 3 plöntur á m².
Reynsla
Rosa 'Brother Cadfael' var keypt í Lystigarðinn 2006 og plantað í beð það ár, óx lítið en blómstraði 2006 og 2007, dauð 2008.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Nefnd eftir aðalpersónu í glæpasöguseríu eftir Ellis PetersVerðlaun: Preis der Stadt Nantes 1993.