Rosa damescena

Ættkvísl
Rosa
Nafn
damescena
Ssp./var
bifera
Yrki form
'Rosa de Rescht'
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rose de Rescht, Gul e Rescht (=Rós frá Rescht).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól til hálfskuggi.
Blómalitur
Dökkfagurrauður, djúpbleikur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
50-120 sm
Vaxtarlag
Lágvaxinn-miðlungsstór, þéttvaxinn, uppréttur rósarunni með sterklegar greinar, 50-120 sm hár og 90 sm breiður.
Lýsing
Þetta er Rosa damacena bifera rós, gömul, harðgerð með þéttfyllt, dökkfagurrauð, meðalstór blóm sem ilma mikið meira en blóm flestra annarra rósa, ilmurinn góður. Blómin eru á uppréttum stilkum sem ná upp fyrir laufið. Nancy Lindsay fann rósina 1940 í þorpinu Rescht í Persíu 1940 og rósin var í ræktun þar fyrir 1880 og hefur verið í ræktun í Noregi síðan 1940. Þetta er lágvaxinn-miðlungsstór, þéttvaxinn, uppréttur runni með sterklegar greinar og dökkgrænt, glansandi lauf með grábláan blæ. Rósin blómstrar mest í fyrstu en heldur svo áfram að blómstra fram í frost.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Með mikla mótstöðu gegn svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
Harka
Z4
Heimildir
Petersen, V. 1981: Gamle roser Iinye haver. Utgivet av de danske haveselskaber København 1981.http://www.hesleberg.no, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,beta.finegardening.com/damask-perpetual-rose-rosa-rose-de-rescht, davesgarden.com/guides/pf/go/52097/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður, líkar ekki miklar rigningar.Þarf frjóan jarðveg. Hæfilegt er að hafa 4 plöntur á m². Talin góð í lágvaxið limgerði í Noregi. Er notuð stök, í beð, nokkrar saman og til afskurðar.
Reynsla
Rosa Rosa de Resht var keypt í Lystigarðinn 2003 og plantað í beð 2004 vex þokkalega og blómstrar mikið. Önnur planta var keypt 2005, höfð í beði sunnan undir gróðurhúsinu, misfórst í vetrargeymslu veturinn 2006-2007. (2009).