Spiraea × fontenaysii

Ættkvísl
Spiraea
Nafn
× fontenaysii
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
Allt að 2 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, allt að 2 m hár. Greinarnar grannar, smágreinar kantaðar, dúnhærðar þegar þær eru ungar.
Lýsing
Lauf 2-5 sm, oddbaugótt-aflöng, bogadregin til beggja enda, bogtennt við oddinn, föl blágræn, og næstum hárlaus á neðra borði. Blómin hvít, í dúnhærðum, keilulaga skúf, sem er allt að 8×8 sm, á stuttum hliðargreinum á ársprotunum. Krónublöðin eru jafn löng og fræflarnir. Aldinin eru næstum hárlaus.
Uppruni
Garðablendingur (S. canescens D. Don. × S. salicifolia L.).
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru tvær plöntur sem gróðursettar voru út í beð 2009, engar upplýsingar er um kal og engin blóm voru á þeim 2011.
Yrki og undirteg.
Yrkið Rosea er með fölbleik blóm.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Upprunalega frá því fyrir 1866 í Fontenay-aux-Roses nálægt París.