Sendiráð Indlands, í samstarfi við Lystigarðinn, vill vekja athygli á komandi alþjóðlegum jógadegi með því að halda jógatíma í garðinum.
Viðburðurinn fer fram mánudaginn 2. júní frá kl. 15:00–16:00, á grasflötinni austan við Eyrarlandstofu, ef veður leyfir.
Herra Shinde, jógakennari hjá indverska sendiráðinu, mun leiða jógatímann sem er í boði indversku ríkisstjórnarinnar og er ókeypis.
Komdu og lærðu indverskt jóga og hugleiðslu í fallegu umhverfi Lystigarðsins.
Hlökkum til að sjá þig þar,
Starfsfólk Lystigarðsins.