Listakonan Galadriel González Romero, sem er búsett í Reykjavík, býður þér að taka þátt í að skapa töfragátt til að flýja yfirvofandi loftslagshamfarir.
Sem hluti af listsamstarfi við Lystigarðinn var moldklumpur tekinn upp úr garðinum og hitaður upp í 29,5 gráður, hitamet Akureyrar, í lengri tíma.
Sunnudaginn 1. júní fer fram athöfn til að skila moldinni aftur á sinn stað í garðinum, ásamt fræi sem gæti vaxið í slíkri hlýrri framtíðarveðráttu.
Viðburðurinn fer fram í Fjallagarðinum (vesturhluta garðsins) klukkan 15:30 og boðið verður upp á jurtate úr villtum plöntum (æskilegt að fólk komið með sinn eigin endurnýtanlega tebolla).
Nánari upplýsingar um listaverk Galadriel er að finna hér.
Galadriel mun einnig koma fram á International Conference - Tales of the Nature Spirits í Hofi 31. maí.
Við biðjum fólk vinsamlega að klifra ekki á klettunum í Fjallagarðinum.
Kveðjur,
Starfsfólk Lystigarðsins