Tónleikar verða haldnir í garðskálanum í Lystigarðinum þann föstudag 30.5.25, kl. 16.
Maltneski gítarleikarinn Glen Montanaro er kominn til Íslands til að halda áfram listrænu samstarfi sínu við þýska saxófónleikarann Moritz Christiansen, sem er búsettur í Reykjavík.
Eftir tónleika í Reykjavík ætla þeir að spila í Lystigarðinum á Akureyri til að kafa dýpra í tónlistina áður en þeir snúa aftur til Reykjavíkur til að fara í stúdíó og taka upp. Glen og Moritz stunduðu nám saman í Álaborg og voru að vinna mikið saman á þeim tíma. Nú eru þeir að taka upp þráðinn aftur og flytja glæný verk.
Tónlistinni má lýsa sem rólegum og ómþýðum en jafnframt mjög spunadrifnum djassi.
Viðburðurinn er ókeypis og allir aldurshópar eru velkomnir.
Vinsamlegast ekki stíga í garðbeðin umhverfis áhorfendasvæðið.
Með kveðju,
Starfsfólk Lystigarðsins.