Í Lystigarðinum verður full dagskrá á milli 14:00 og 17:00 í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní, þar á meðal ræður, hljómsveitir, leiksýningar og hoppukastalar.
Nánari upplýsingar um viðburði má finna á hér
Starfsfólk Lystigarðsins óskar öllum gleðilegrar þjóðhátíðar og biður um leið gesti að sýna „lifandi safni“ okkar virðingu.
Vinsamlegast stigið ekki á plöntubeð og passið að allt rusl sé sett í ruslatunnu.
Með fyrirfram þökk,
Starfsfólk Lystigarðsins.