Alchemilla filicaulis

Ættkvísl
Alchemilla
Nafn
filicaulis
Íslenskt nafn
Maríustakkur
Ætt
Rosaceae (Rósaætt)
Kjörlendi
Vex í margs konar gróðurlendi, í skjólgóðum hvömmum, bollum, grónum hlíðum og lækjargiljum. Þolir hálfskugga.
Blómalitur
Grænn-gulgrænn
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.15-0.40 m
Lýsing
Blöðin eru allstór, stofnblöðin stilklöng (4-20 sm) en stöngulblöð nærri stilklaus. Blaðkan handstrengjótt, kringlótt eða nýrlaga með reglulega tenntum sepum, 4-10 sm í þvermál. Blómskipun er gisinn skúfur með þéttstæðum blómum. Blómin fjórdeild, með fjórum bikarblöðum og fjórum utanbikarblöðum en engum krónublöðum. Blómin græn eða gulgræn, mörg saman í þéttgreindum blómskipunum úr blaðöxlum, 3-4 mm í þvermál. Bikarflipar grænir, krossstæðir, yddir með hárbrúsk í endann. Mjóir, stuttir, utanbikarflipar eru á milli. Fræflar fjórir og ein fræva með einum hliðstæðum stíl. Blómgast í júní. LÍK/LÍKAR: Maríuvöttur sem þekkist á dýpra klofnum blöðum.Maríustakk er oft skipt í tvær deilitegundir sem báðar eru algengar, ssp. filicaulis og ssp. vestita (Buser) M.E. Bradshaw, hlíðamaríustakkur, sem áður var stundum talin sjálfstæðtegund, en hann myndar fræ án undangenginnar frjóvgunar (geldæxlun). Maríustakkur (Alchemilla filicaulis ssp. filicaulis),Auðþekkt á útstæðum, allþéttum hárum á blaðstilkunum. Blómstönglar einnig með útstæðum hárum, eða hárlausir.Hlíðamaríustakkur (Alchemilla filicaulis ssp. vestita) - Deilitegundin hefur þétthærða blaðstilka, og úthærða stöngla og blómleggi.
Heimildir
1,2,3,9
Reynsla
“Vatn, sem gufar út úr plöntunni, safnast saman á blöðum, því að þau eru vaxkennd og myndar það stóra dropa. Döggblaðka er af því dregið. Gullgerðarmenn fyrri alda reyndu að vinna gull úr dropunum og þykir gott að þvo augun úr þeim. Ítalskar jómfrúr varðveittu meydóm sinn með því að neyta jurtarinnar, því að hún hefur samandragandi kraft og slöpp brjóst urðu þrýstin. Þótti góður við slæmum tíðaverkjum. Var mikið notaður til litunar. Sofi maður á maríustakki óttast hann hvorki í svefni né dreymir illa.” (Ág. H. Bj.)
Útbreiðsla
Mjög algengur um land allt.