Alchemilla glomerulans

Ættkvísl
Alchemilla
Nafn
glomerulans
Íslenskt nafn
Hnoðamaríustakkur
Ætt
Rosaceae (Rósaætt)
Samheiti
Alchemilla glacialis Ósk.; Alchemilla vulgaris subsp. glomerulans (Buser) Murb.; Alchemilla vulgaris subsp. glomerulans (Buser) O.Bolòs & Vigo;
Kjörlendi
Vex í blómlendi og röku vallendi. Fremur sjaldséð
Vaxtarlag
Hann er afar líkur venjulegum maríustakk en er þó að jafnaði töluvert hærri og gjarnan ljósgrænni á lit og vex gjarnan heldur hærra til fjalla.
Lýsing
Stönglar, blaðstilkur og blöðkur með aðlæg hár. Blaðkan stór og oftast ljósgræn. Blaðskerðingar 1/6-1/8 af þvermáli blöðkunnar á dýpt. Í sólskini glitrar skemmtilega á aðhærðu hárin á efra borði blaðka.Blómhnoðin mörg og smá á stuttum blómstilkum. Bikarinn hárlaus eða mjög lítið hærður.Vex hærra til fjalla en hinar tegundirnar. Lík/likar: Líkist bæði maríustakk og hlíðamaríustakk. Má greina á hæringu blaðstilka og blómstöngla. Blaðstilkarnir eru greinilega aðhærðir, þ.e. hárin liggja upp að stilknum á hnoðamaríustakk en standa hornrétt út frá stilknum á maríustakk og hlíðamaríustakk.
Heimildir
9, Hkr.
Útbreiðsla
All algengur um land allt, oft allhátt til fjalla.Önnur náttúruleg heimkynni: Evrópa allt norður til Svalbarða. Finnst einnig á Grænlandi og í N Ameríku skv. USDA.