Betula x intermedia

Ættkvísl
Betula
Nafn
x intermedia
Íslenskt nafn
Skógviðarbróðir
Ætt
Betulaceae (Bjarkarætt)
Lífsform
Runni
Blómgunartími
maí
Hæð
0.5-2 m
Vaxtarlag
Runni eða mjög lítið kræklótt tré. Fjalldrapi myndar kynblendinga með birki sem hafa odd á blöðunum líkt og birki, en blöðin eru þó minni en á birkinu. Myndar oftast runna sem eru meira eða minna jarðlægir en þó töluvert hærri en fjalldrapinn.
Lýsing
Yfirleitt runnkenndur, börkur grár-brúnleitur, greinar hærðar án varta. Reklar uppréttir. Kynblendingurinn er tíðari um norðanvert landið, þar sem mest er af fjalldrapa. Haustlitir gjarnan með rauðu ívafi eins og í fjalldrapa (alltaf gulir í birki). 2n = 42
Heimildir
1,9, HKr.
Útbreiðsla
Nokkuð algengur um norðanvert landið.