Cardamine bellidifolia

Ættkvísl
Cardamine
Nafn
bellidifolia
Íslenskt nafn
Jöklaklukka
Ætt
Brassicaceae (Krossblómaætt)
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex til fjalla, t.d. á jökulaurum, háfjallamelum og mosaþembum.
Blómalitur
Hvítur
Hæð
0.01-0.06 m
Vaxtarlag
Örsmá, hárlaus fjallajurt, 1-6 sm á hæð. Stönglar margir af sömu rót, ógreindir og yfirleitt blaðlausir. Myndar smáþúfur eða smábrúska.
Lýsing
Flest blöðin stofnstæð, heilrend, egglaga eða nær kringlótt, stilklöng og oft hærri en blómklasarnir. Blaðstilkar mun lengri en blöðkur. Blöðkur 3-7 mm á lengd og 2-5 mm á breidd yfirleitt með örstuttum kirtiloddi í endann. Blómin fjórdeild, hvít, mjög smá, fá saman í klasa á stöngulendum. Hvert blóm 4-5 mm í þvermál. Krónublöðin upprétt um helmingi lengri en bikarblöðin. Bikarblöðin oft dálítið rauðbláleit, snubbót um 2 mm að lengd. Fræflar 6 og ein aflöng fræva sem verður við þroska að 1-2 sm löngum skálp og aðeins 1 mm breiðum. Skálparnir dökkleitir með stuttum gildum stíl, hlutfallslega mjög langir og uppréttir fullþroska. LÍK/LÍKAR: Melablóm & fjallaafbrigði skarfakáls. Jöklaklukka þekkist á skálpunum, á heilrendum blöðum og á því að blaðstilkar eru mun lengri en blöðkurnar.
Heimildir
1,2,3,9, HKr.
Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf. Á víð og dreif um landið til fjalla nema á Suðurlandi.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Norðurhvel; N Ameríka, N Evrópa, NA Asía